Jóhann Berg Guðmundsson kantmaður Burnley var borinn af velli eftir 14 mínútur í fyrsta leik liðsins á þessu tímabili. Burnley er að leika gegn Sheffield United í deildarbikarnum.
Jóhann var samkvæmt Burnley tæklaður á tíundu mínútu leiksins og var síðan borinn af velli eftir að hafa ekki getað haldið leik áfram.
„Burnley þarf að gera breytingu, Guðmundsson er borinn af velli,“ segir á Twitter síðu Burnley. Stuðningsmenn Burnley óttast að meiðslin séu alvarleg en Jóhann var borinn af velli með súrefnisgrímu.
Kantmaðurinn knái var mikið meiddur á síðustu leiktíð en hann hafði náð að endaspretti síðustu leiktíðar og æft í sumar. „Hræðilegt brot, ætti að vera beint rautt,“ skrifaði einn stuðningsmaður Burnley.
14′ The Clarets are forced into an early change, as Gudmundsson leaves the pitch on a stretcher, Pieters will replace the winger. 0-1
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) September 17, 2020