fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
433

Simeone um sögusagnirnar: ,,Kemur mér ekki á óvart“

Victor Pálsson
Fimmtudaginn 16. júlí 2020 10:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, hefur tjáð sig um þær sögusagnir að Chelsea sé að reyna við Jan Oblak.

Oblak þykir vera einn besti markvörður heims en hann hefur undanfarin ár varið mark Atletico og staðið sig með prýði.

,,Þetta kemur mér ekkert á óvart, á hverju ári eru okkar bestu leikmenn orðaðir við bestu lið heims,“ sagði Simeone.

,,Það er eðlilegt að skoða bestu leikmennina og við eigum svo marga. Sumir hafa farið og aðrir ekki.“

,,Það er skiljanlegt að einhver vilji fá Oblak. Hann er okkar fyrirliði og mikilvægur leikmaður. Ég vona að við getum haldið áfram að treysta á hann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Skrifar undir eða verður settur á sölulista – ,,Erum ekki félag sem losar leikmenn frítt“

Skrifar undir eða verður settur á sölulista – ,,Erum ekki félag sem losar leikmenn frítt“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Eru í þriðju deild en stefna gríðarlega hátt – Verður stærri en völlur Chelsea og Villa

Eru í þriðju deild en stefna gríðarlega hátt – Verður stærri en völlur Chelsea og Villa