Ansu Fati, nýjasta stjarna Barcelona, skoraði tvö mörk í gær í 2-1 sigri liðsins á Levante.
Fati er aðeins 17 ára gamall og fær að spila með fyrirmyndinni Lionel Messi sem lagði upp bæði mörkin í gær.
Fati viðurkennir að hann sé enn að átta sig á því að hann sé að spila með stórstjörnunni sjálfri í byrjunarliði Barca.
,,Ég efast enn um hvort að þetta sé í raun að gerast. Ég hef beðið í mörg ár eftir að fá að spila með honum og núna spila ég með honun,“ sagði Fati.
,,Þetta er draumurinn. Þetta hefur alltaf verið draumurinn. Ég verð að þakka liðsfélögunum og stjóranum fyrir að gefa mér tækifæri.“