Lautaro Martinez, leikmaður Inter Milan, er einn besti framherji heims í dag að mati Mauricio Pochettino.
Pochettino er fyrrum stjóri Tottenham en hann hefur séð Martinez spila glimrandi vel með Inter á leiktíðinni.
Mörg stórlið eru á eftir þessum 22 ára gamla leikmanni sem hefur skorað 16 mörk á tímabilinu.
,,Lautaro Martinez er einn besti framherji heims,“ sagði Pochettino við Radio La Plata.
,,Það er ekki bara hvað hann gerir núna heldur það sem hann getur gert í framtíðinni.“
,,Ef þú byrjar að skoða leyniskyttur fyrir stærstu liðin þá verður hans nafn að vera í hattinum.“