Manchester United er sagt vera búið að setja sig í samband við umboðsmann vængmannsins Thomas Lemar.
Það er ESPN sem greinir frá þessu en þessi 24 ára gamli leikmaður spilar með Atletico Madrid.
Lemar hefur ekki fundið taktinn á Spáni og er Atletico opið fyrir því að hleypa honum burt í sumar.
Ole Gunnar Solskjær ku vera aðdáandi leikmannsins en hann vill styrkja hópinn verulega í sumar.
Lemar hefur spilað 28 leiki fyrir Atletico á leiktíðinni en hefur ekki tekist að skora mark.