fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Segir frá því þegar hann ætlaði að stoppa einn frægasta morðingja Bretlands: „Var með kjúkling og fjóra bjóra“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 28. febrúar 2020 10:58

Raoul Moat í skotbardaga við lögregluna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raulo Moat kom að einu frægasta morðmáli Bretlands síðustu ára en fyrir tæpum tíu árum myrti hann fyrrverandi kærustu sína, unnusta hennar og lögreglumann. Hann fór svo á flótta. Málið vakti mikla athygli í fjölmiðlum og enn meiri athygli þegar Paul Gascoigne, einn þekktasti knattspyrnumaður Bretlands ætlaði að mæta á svæðið og ræða við Moat.

Lögreglan hafði þá komist að því hvar Moat væri, hann hafði farið út í sveit í Newcastle og var að fela sig í kringum litla á. Paul Gascoigne mætti á svæðið, sauðdrukinn og ætlaði að ræða við hann og sannfæra hann um að gefa sig fram. ,,Ég man eftir því að hafa verið í leigubíl, ég var með fiskinet, kjúkling og fjóra bjóra,“ sagði Gazza.

Gascoigne hefur oft á tíðum glímt við mikil áfengisvandamál og hann var að herja baráttu á þessum tíma í dag, hann er edrú í dag.

,,Ég ætlaði að fara með Moat að veiða, hann var nálægt á. Ég hafði trú á því að ég gæti talað hann til.“

Lögreglan vildi ekki sjá það að Gascoigne myndi nálgast Moat en hann endaði á að skjóta sjálfan sig, þegar hann var í byssubardaga við lögregluna.

,,Ég mundi ekki eftir öllu,“ sagði Gascoigne en hann segir að síminn sinn hafi ekki stoppað í nokkra daga eftir atvikið .

Raul Moat
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona