,,Væntingar mínar til hans?,“ sagði Carlo Ancelotti, stjóri Everton þegar hann var spurður út í Gylfa Þór Sigurðsson og frammistöðu hans.
Gylfi hefur spilað flesta leiki eftir að Ancelotti tók við en rætt hefur verið um framtíð hans undanfarið.
,,Það er rétt að hann hefur ekki skorað eins mikið og í fyrra, hann hefur hins vegar verið að spila aðrar stöður.“
,,Hann er ekki eins mikið upp við markið en það skiptir ekki máli. Hann hefur staðið undir þeim væntingum sem ég hef gert til hans, hann er að gera vel en auðvitað vona ég að hann geti skorað.“
Gylfi og félagar taka á móti Manchester United á sunnudag og má búast við hörkuleik.
On Sigurdsson: „My expectation from him, it’s true he hasn’t scored like last year but he’s played in different positions. We lose him in front, but it doesn’t matter. The expectation I have with him he was able to realise. He’s doing well and of course I hope he can score.“
— Adam Jones (@Adam_Jones94) February 28, 2020