Það er óhætt að segja að íslenskir netverjar hafi grenjað úr hlátri þegar þeir hlustuðu á nýjasta þáttinn af hlaðvarpsþættinum Steve Dagskrá. Andri Geir Gunnarsson, annar af stjórnendum þáttarins, var í beinni frá Tenerife.
Hlaðvarpsþátturinn fjallar fyrst og fremst um fótbolta en Andri Geir var klókur leikmaður á sínum yngri árum. Andri var með stutta ferðasögu um ferðalag sitt, hann dvelur nú á eyjunni fögru en flugferðin fer í minningarbanka Andra. ,,Ég lenti í hremmingum í fluginu, flugið var búið að ganga snurðulaust fyrir sig. Æðislegt flug, náðum að hella vel í okkur. Spænsk áhöfn, voða vinalegt,“ sagði Andri.
Þegar flugið var senn á enda var Andri í klandri, pissublaðran var full en það voru einnig klósettin í vélinni.
,,Síðasta klukkutímann, ég er í miðju sætinu og kærastan við gluggann. Íslensk kona við ganginn, sem var voða almennileg. Hleypti okkur alltaf þegar við þurfum að komast á klósett. Síðasta klukkutímann er svo sætisbeltaljósið kveikt, það er einhver hristingur. Við höldum í okkur, hugsum að þetta fari og tökum eitt loka piss fyrir lendingu.“
,,Nema hvað, það slökknar ekkert á þessu ljósi. Við hóum í flugfreyjuna, er hægt að fá að að pissa, spurði ég. Nei, var svarið. Klósettið var fullt, það er ekki hægt að pissa.“
,,Þetta eru 40-50 mínútur eftir og ég er í spreng, ég er á milli steins og sleggju. Er ég að fara að halda í mér á hnefanum? Eða er ég að fara að míga í flösku hérna í flugvélinni, ég lít á kærustuna og hún er með vatnsflösku. Kærastan fer að þamba af henni til að búa til pláss, ætlar að gefa mér sopa. Ég sagði henni að gleyma því, ég er ekki að fara að drekka dropa meira. Við vorum með einn Pringles lausan.“
Þarna hafði Andri ákveðið að láta bununa renna í Pringles-dósina. ,,Við skiptum um sæti. Ég fer frá íslensku konunni, svo er ég með jakkann yfir og tek Pringles staukinn. Þið sitjið í sæti núna, þú pissar ekki sitjandi ofan í. Hann (limurinn) bendir bara upp, ég þurfti að færa mig neðar í sætið til að ná honum ofan í Pringles. Það var búið að loka klósettinu, ég varð að gera þetta.“
,,Svo pissa ég ofan í þetta, kærastan var alltaf að segja mér að stoppa núna. Ég held bara áfram, þetta var ekki auðvelt. Það fór út um allt, ég var pissublautur. Svo er ég eiginlega búinn að fylla hana, þetta var litli Pringles. Hún var ekki sléttfull, svo loka ég henni og set hana á gólfið.“
Þegar Andri hafði lokið sér af, þá fór hann að vesenast með dolluna. Vissi ekki hvað hann ætti að gera við Pringles dós, fulla af hlandi.
,,Ég læt hana vera og ýti dollunni undir næsta sæti, svo hafði ég það ekki í mér. Ég tek hana með mér, er í röðinni út úr vélinni og held á þessu eins og kjáni. Þú ert ekki að fara að halla þessu. Ég held á þessu eins og þetta sé þvagprufa, sem þetta í raun var. Labba niður landganginn og fatta að það er rúta, ég labba í rútuna og held á þessu. Ekki eins og Pringles, er að reyna að fela þetta. Svo þarf ég að bíða að rútan fyllist áður en farið er af stað. Sem betur var rusl um leið og ég labba inn í flugstöðina, en ég var áfram pissublautur. Hvað átti ég að gera? Átti ég að míga í mig?
,,Dollan stóð sig eins og hetja, var alveg held. Það hefði verið hræðilegt ef hún hefði farið að dropa. Þetta er vel húðað.“
Óhætt er að segja að íslenskir netverjar hafi haft gaman af en Atli Fannar Bjarkason er einn af þeim sem ræðir málið. ,,Varðandi rakaþol Pringles-dósa. Þéttleikinn er helsta stolt Pringles, enda eina snakkið sem lifir af rök hitabelti — eina snakkið með loki. Það kom mér því ekki á óvart að heyra að þvagið hafi haldist á sínum stað,“ skrifar Atli.
Klár fyrir flug. #pringles @stevedagskra pic.twitter.com/k0qLcoVidQ
— Salvar Georgsson (@SalvarGe) February 7, 2020
semi grét úr hlátri yfir þessari pringlesfrásögn https://t.co/crLP8eAFeV
— Egill Ástráðsson (@egillastradsson) February 6, 2020
Ferðasaga Andra í @stevedagskra er það fyndnasta sem ég hef heyrt. Bókstaflega grét úr hlátri!
— Eisi Kristjánss (@EidurKristjanss) February 6, 2020
Þetta er top 1 það fyndnasta sem ég hef heyrt @stevedagskra https://t.co/gLaNaMryuS
— Bjarni Dagur (@bjarnidagur) February 6, 2020
Þetta er besta saga sem ég hef heyrt. Takk Andri https://t.co/RGXevvJ4oS
— Sigtryggur Rúnarsson (@Siddi13) February 5, 2020
@joiskuli10 varðandi rakaþol Pringles-dósa (langaði að hringja inn í @stevedagskra og spjalla).
Þéttleikinn er helsta stolt Pringles, enda eina snakkið sem lifir af rök hitabelti — eina snakkið með loki. Það kom mér því ekki á óvart að heyra að þvagið hafi haldist á sínum stað.
— Atli Fannar (@atlifannar) February 5, 2020
Þessi ferðasaga er það allra besta! 😂 https://t.co/2xSk6QHpOb
— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) February 5, 2020
Klár fyrir flug. #pringles @stevedagskra pic.twitter.com/k0qLcoVidQ
— Salvar Georgsson (@SalvarGe) February 7, 2020