fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Frétt um skattaskuld Elíasar stormur í vatnsglasi: Skuldin þurrkuð út á næstu dögum

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 6. febrúar 2020 09:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sænskir fjölmiðlar fjölluðu í dag um að íslenski landsliðsmaðurinn, Elías Már Ómarsson skuldaði skattinum þar í landi um fimm milljónir króna.

Sagt var að um væri að ræða skuld vegna skatta og vegatolla sem Elías hafði ekki greitt. Elías lék með sænska félaginu Gautaborg en fór þaðan árið 2018 og hefur síðan þá spilað í Hollandi.

Málið er þó ekki eins alvarlegt eins og sænskir miðlar láta líta út fyrir að vera, þeta sagði Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans í samtali við 433.is.

Ástæðan að sögn Ólafs er fyrirtæki sem Elías hafði stofnað í Svíþjóð, á sinni kennitölu. Hann hafði ætlað að flytja inn vörur til landsins en ekkert varð úr því. Ólafur sagði að Elías hafi greint að skila inn framtali fyrir þetta fyrirtæki, að að þessi skuld hans við skattinn væri aðeins áætlun hans.

,,Ég marg sagði blaðamanninum í Svíþjóð þetta, Elías skuldar engum neitt. Hann skilar þessu framtali í dag eða á morgun, þá þurrkast þessi skuld út,“
sagði Ólafur við 433.is í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona