Cristiano Ronaldo skráði sig á spjöld sögunnar í gær, kannski ekki merkilegasta spjaldið í sögunni þó.
Ronaldo er fyrsti einstaklingurinn í heiminum sem er með 200 milljónir fylgjenda á Instagram.
Ronaldo er stærsta stjarnan í íþróttaheiminum og hefur verið síðustu ár, Instagram reikningur hans færir honum gríðarlegt magn af tekjum.
Hann skákar við öllum við en Ariana Grande er með 173 milljónir fylgjenda og er í öðru sæti.
Ronaldo hefur verið einn besti knattspyrnumaður í heimi síðustu 15 árin og notið mikilla vinsælda eins og þetta sannar.
ICYMI: Cristiano Ronaldo is the first person to reach 200m followers on Instagram. 🎉 pic.twitter.com/tiXdkJfVIx
— MailOnline Sport (@MailSport) January 30, 2020