Cristiano Ronaldo átti frábæran leik fyrir lið Juventus sem vann Parma 2-1 í ítölsku úrvalsdeildinni um helgina.
Ronaldo minnti á sig í sigri toppliðsins en hann skoraði bæði mörkin til að tryggja sigur.
Eftir seinan mark Ronaldo þá fagnaði hann með liðsfélaga sínum Paulo Dybala en þeir eru góðir vinir.
Ronaldo var mjög ánægður með framlag Dybala og smellti á hann koss á munninn í fagnaðarlátunum.
Þetta má sjá hér.
Ronaldo and Dybala clearly improving their relationship on and off the field pic.twitter.com/cY7VSP1X9A
— Nebula Football (@NebulaFootballx) 20 January 2020