Manchester United hefur lengi verið að reyna að semja við markvörðinn David de Gea sem verður samningslaus næsta sumar.
United hefur reynt í marga mánuði að fá De Gea til að framlengja samning sinn en hann má ræða við nýtt félag í janúar.
Samkvæmt spænskum fregnum þá hafa viðræðurnar verið á sama stað síðustu mánuði og gengur lítið að semja.
De Gea hefur spilað með United í mörg ár og er talinn einn besti markvörður heims.
Það gengur þó ekkert hjá enska liðinu að semja við Spánverjann sem er orðaður við Juventus.