James Maddison reyndist hetja Leicester í dag sem mætti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.
Maddison skoraði frábært sigurmark á King Power er Leicester vann 2-1 sigur á Tottenham.
Nú er mikið grín gert að Maddison á samskiptamiðlum eftir bakpokann sem hann mætti með á völlinn í dag.
Bakpokinn er frá Louis Vuitton og kostar 6,500 pund sem gerir rúmlega eina milljón íslenskar.
Það er aldrei að vita hvort þetta sé lukkugripur Maddison eftir sigurmarkið í dag.
Hér má sjá pokann.