fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Opnar á að nýjasta stjarnan fari til United: Þrátt fyrir allt sem gekk á

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. september 2019 14:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ný stjarna komin upp á sjónarsviðið í knattspyrnunni en sá strákur ber nafnið Erling Braut Haland.
Haland er 19 ára gamall Norðmaður en hann skrifaði undir samning við RB Salzburg fyrr á þessu ári.

Haland kom til félagsins frá Molde í Noregi þar sem hann skoraði 14 mörk í 39 deildarleikjum sem táningur. Strákurinn er einn allra efnilegasti leikmaður heims og er byrjaður að raða inn mörkum með Salzburg.

Norðmaðurinn hefur skorað 12 mörk í níu deildarleikjum sem er stórkostlegur árangur. Hann skoraði þrennu fyrir lið Salzburg í gær sem vann sannfærandi 6-2 sigur á Genk í Meistaradeildinni. Haland var að leika sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni og er nú aðeins þriðji táningurinn til að skora þrennu í fyrsta leik.

Nú er sagt að 50 útsendarar frá stærri félögum hafi mætt á völlinn í gær til að fylgjast með Haland. Manchester United, var eitt þeirra félaga.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United þarf hins vegar ekki að sjá mikið af Haland. Hann þjálfaði hann í Molde og gaf honum sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Samband þeirra er gott og telja ensk blöð að Solskjær hafi bestu spilin á hendi.

Það sem talið var að gæti unnið gegn United er að Erling er sonur Alf-Inge Håland, ferill hans fór í vaskinn eftir gróft brot frá Roy Keane, þá fyrirliða United. Alf-Inge Håland lék þá með Leeds.

,,Það væri gaman að sjá hann í United,“ sagði faðir hans, Alfe-Inge Haland og slökkti þar með í þeim sögum.

,,Það er mikilvægt að dvelja ekki í fortíðinni, ég er mjög rólegur gagnvart þessu atvik. Flestum dreymir um að spila í ensku úrvalsdeildinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði