Marko Arnautovic gekk í raðir Shanghai SIPG á dögunum en hann kemur til félagsins frá West Ham.
Arnautovic er umdeildur karakter og hefur reglulega fengið neikvæðna umfjöllun í enskum miðlum.
Sóknarmaðurinn segir að enskir miðlar elski að bulla og að þeir viti ekkert hvernig hann hagar sér á æfingasvæðinu.
,,Þeir æfa ekki með mér og þeir spila ekki með mér, þeir skrifa bara eitthvað,“ sagði Arnautovic.
,,Kannski virka evrópskir fjölmiðlar þannig. Sannleikurinn er sá að ég gef allt fyrir mitt lið, ég spara mig aldrei.“
,,Ég er kominn hingað til að leggja mig fram, ég vil hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum.“