Íslenska karlalandsliðið fékk skell þegar það heimsótti Frakkland í undankeppni EM á mánudag. Liðið tapaði 4-0.
Frakkar voru með 1-0 forystu þangað til rúmar tuttugu mínútur voru eftir, þá brotnaði íslenska liðið.
,,Stigasöfnun íslenska fótboltalandsliðsins eftir tvo fyrstu leikina í undankeppni EM er eftir bókinni. Svokallaður skyldusigur vannst gegn Andorra og fyrirséð tap gegn heimsmeisturum Frakka leit dagsins ljós í fyrrakvöld,“ skrifar Guðmundur Hilmarsson, blaðamaður Morgunblaðsins í bakverði dagsins í blaðinu.
Guðmundur líkir leiknum við hörmungarnar í Sviss þegar Ísland tapaði 6-0, síðasta haust.
,,Strákarnir gerðu það sem þeir þurftu að gera á móti Andorra en spilamennskan á móti Frökkunum olli mér miklum vonbrigðum. Leikur liðsins var virkilega dapur frá a til ö. Vissulega var andstæðingurinn ógnarsterkur en liðið okkar var sundurspilað lungann úr leiknum og frammistaðan í líkingu við skellinn sem liðið fékk í fyrsta leiknum undir stjórn Erik Hamrén á móti Sviss.“
,,Hamrén veðjaði á þriggja miðvarða kerfið í leiknum á móti Frökkunum og það verður að segjast eins og er að það gekk engan veginn upp. Kári, Ragnar og Sverrir náðu sjaldan að slá í takt og í þau fáu skipti sem íslenska liðið var með boltann var það fljótt að tapa honum.“
Guðmundi finnst áran yfir landsliðinu ekki nógu góð og hefur áhyggjur af stöðunni hjá Erik Hamren.
,,Uppskera landsliðsins í tíu leikjum undir stjórn Hamrén hefur ekki verið góð. Liðið hefur aðeins unnið einn leik, skorað 9 mörk en fengið á sig 23. Áran yfir liðinu hefur ekkert verið sérlega góð eftir HM í Rússlandi.“