Lið Al-Arabi í Katar hefur staðfest það að Aron Einar Gunnarsson sé á leið til félagsins. Al Arabi leikur í Katar en þjálfari liðsins er Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari.
Aron hefur gert tveggja ára samning við Al-Arabi með möguleika á eins árs framlengingu.
Hópurinn, Algjörlega óáhugaverðar fótboltaupplýsingar á Facebook er oft skemmtilegur vettvangur, fyrir mis gáfulega hluti.
Í dag bendir Björgvin Arnarsson á það að astoðarmaður Heimis í Katar heiti, Jordi Condom Auli.
Það verður því Auli sem muni segja Aroni Einari Gunnarssyni til í Katar, en Auli kemur frá Spáni og hefur mikla reynslu úr þjálfun.