Árni Vilhjálmsson byrjar mjög vel með sínu nýja liði Kolos Kovalivka í Úkraínu.
Árni gekk í raðir Kolos nýlega og spilaði í 4-0 sigri á Dnipro-1 í úrvalsdeildinni í dag.
Framherjinn skoraði tvennu í öruggum 4-0 sigri en það fyrra kom úr vítaspyrnu.
Kolos er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig, 27 stigum á eftir toppliði Shakhtar Donetsk.
Hér má sjá mörkin.
#BigÁV með tvö mörk og stoðsendingu í dag. pic.twitter.com/KDAXYKEexE
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) 7 December 2019