Manchester City gaf frá sér tilkynningu í gær þar sem greint var frá því að stuðningsmaður hafi látið lífið á leik gegn Arsenal.
City spilaði við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær og vann liðið sannfærandi 3-0 útisigur.
Þessi umtalaði stuðningsmaður hafði stutt City allt sitt líf og heiðraði félagið minningu hans eftir fréttirnar.
Að svo stöddu er ekki ljóst hvað átti sér stað en maðurinn komst aldrei á leiðarenda í gær frá Manchester til London.
City sendir fjölskyldu mannsins samúðarkveðjur en frekar verður greint frá málinu síðar í dag.
Manchester City wishes to express its sincere condolences to the family and friends of a long-time City supporter who passed away today on his way to attending the game at Arsenal.
The thoughts of all at the Club are with the family and loved ones at this very sad time.
— Manchester City (@ManCity) 15 December 2019