Liverpool vann skyldusigur í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið mætti Watford á Anfield.
Það var ekki búist við neinu nema sigri heimamanna í dag og varð það niðurstaðan í háfeginu.
Það var Mohamed Salah sem sá um að skora mörk Liverpool í 2-0 sigri en eitt kom í fyrri hálfleik og annað í þeim seinni.
Seinna mark Liverpool kom ekki fyrr en á lokamínútu venjulegs leiktíma og var Watford því lengi inn í leiknum.
Þegar 10 mínútur voru eftir þá varð Jurgen Klopp, stjóri liðsins, svolítið hræddur eftir sendingu Virgil van Dijk til baka.
Sem betur fer fyrir Liverpool þá reddaðist það á endanum en viðbrögð Klopp má sjá hér.
Jurgen Klopp reaction after Virgil’s pass
😁😬— 6 (@lfc_allting) 14 December 2019