Liverpool er ekki með betri einstaklinga í leikmannahópi sínum en Manchester United.
Þetta segir goðsögn Liverpool, John Barnes, en það er gríðarlegur munur á gengi liðanna þessa stundina.
Barnes telur þó að Liverpool sé ekki með meiri gæði í hópnum en United, Arsenal eða Tottenham.
,,Liverpool er ekki með betri leikmenn en Manchester United, Tottenham eða Arsenal,“ sagði Barnes.
,,Munurinn er að þeir standa saman, hafa meiri trú, vinna betur saman og hafa trú á þjálfaranum.“