Leikmenn Manchester United slaka á þessa stundina en landsleikjahléið er nú farið af stað á ný.
Það eru þónokkrar stjörnur United sem fá engin verkefni með sínum landsliðum og gátu því skellt sér til Dubai.
Juan Mata, Ashley Young, Aaron Wan Bissaka og Fred voru á meðal þeirra sem skelltu sér erlendi.
Þeir hittu kokkinn fræga Salt Bae í Dubai og hafa væntanlega fengið góða steik á hans veitingahúsi.
Búist er við að leikmennirnir verði í Dubai áfram næstu tvo dagana en þar eru með í för nokkrir þjálfarar United.
Mynd af þeim með Salt Bae má sjá hér.