Það er útlit fyrir það að tveir mikilvægir leikmenn verði ekki með Chelsea gegn Newcastle um helgina.
Frá þessu er greint í dag en leikmenn Chelsea hafa verið í miklum meiðslavandræðum á tímabilinu.
Emerson mun líklega ekki snúa aftur svo snemma en hann hefur verið meiddur síðan í september.
Talið er að Emerson spili ekki um helgina en gæti fengi sér sæti á bekknum.
Andreas Christensen gæti þá einnig misst af leiknum en hann meiddist í landsleikjahlénu með Danmörku.
Christensen er að glíma við meiðsli aftan í læri en óvíst er hversu alvarleg þau eru.