fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Heimir segir starf tannlæknis hjálpa sér í þjálfun: Ræðir aðferðir Klopp og Guardiola

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 10. október 2019 11:30

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Hallgrímsson, þjálfari Al-Arabi í Katar er að finna taktinn þar í landi en hann fékk hálft ár til að koma sér inn í starfið.

Al-Arabi hefur byrjað með ágætum á þessu tímabili en félagið vonast til að komast aftur í fremstu röð undir stjórn Heimis.

,,Þegar einstaklingur kemur til tannlæknis, þá eru sumir hræddir en aðrir ekki. Þú kemur mismunandi fram við einstaklinga, markmiðið er að klára starfið,“ sagði Heimir við fjölmiðla í Katar.

,,Það eins með leikmenn, suma þarftu að faðma og við aðra þarf að tala hressilega við. Það er mikilvægt að þekkja leikmenn og þeirra persónuleika. Það hjálpar þjálfara að ná því besta fram úr liðinu, ég held að starf mitt sem tannlæknir hjálpi mér að eiga við mismunandi karaktera í fótbolta.“

Heimir segir það misskilning að allir eigi að spila eins og Jurgen Klopp og Pep Guardiola geri með sín lið. ,,Ég er ekki hrifinn af því þegar þjálfarar reyna að spila tiki taka leik Guardiola eða pressa eins og Klopp vill gera. Þú verður að finna það út hvaða leikmenn þú hefur, þú átt að skapa þína hugmyndafræði sem hjálpar þér að svara spurningunni. Hvernig vinn ég leiki,“ sagði Heimir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði