fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
433Sport

Vinur Rooney hjónanna gómaður af Coleen: Hefur lekið öllu í The Sun – Eiginkona knattspyrnumanns

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 9. október 2019 10:01

Coleen og Wayne Rooney

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enska götublaðið The Sun hefur síðustu ár flutt mikið af fréttum af Coleen Rooney og eiginmanni hennar, Wayne Rooney. Til að byrja með voru fréttirnar allt um persónulegt líf þeirra hjóna.

Til að byrja með voru fréttir The Sun allar réttar, upplýsingarnar komu eftir að Coleen Rooney, hafði deilt upplýsingum með nánum vinum á Instagram.

Coleen skildi ekki af hverju allar þessar upplýsingar rötuðu í The Sun, hún var aðeins með nána vini á þessum lokaða Instagram reikningi. Það kom því ekkert annað til greina en að vinkona eða vinur hennar væri að leka upplýsingum í blaðið.

,,Í nokkur ár hefur einhver sem ég treysti til að fylgja mér á persónulegum Instagram reikningi, lekið upplýsingum í The Sun,“ skrifar Coleen.

,,Blaðið hefur fengið svo mikið af upplýsingum um mig, vini mína og fjölskyldu, án leyfis og án þess að ég vissi.“

Coleen fór að gruna hver væri að leka í blaðið. ,,Eftir mikla umhugsun fór mig að gruna hver ætti í hlut. Til að sanna það, ákvað ég að loka á að allir nema einn aðili, gætu séð Instagram færslur mínar.“

,,Síðustu fimm mánuði hef ég deilt helling af falsfréttum til að sjá hvort það myndi rata í The Sun. Það gerðist, fréttir um að velja kyn af næsta barni í Mexíkó. Að ég væri að snúa aftur í sjónvarp og það nýjasta, að það væri leki í kjallaranum okkar.“

Sá aðili sem hefur lekið öllu í The Sun er Rebekah Vardy, eiginkona Jamie Vardy sem var með Wayne Rooney í enska landsliðinu. ,,Það hefur verið erfitt að halda þessu fyrir mig,  núna veit ég hver þetta er.“

,,Ég hef vistað allar myndir sem sanna að bara einn aðili hefur séð þessar sögur á Instagram. Það er Rebekah Vardy.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Telur pirring ríkja fyrir norðan – „Þetta er ekki að slá ryki í augun á neinum“

Telur pirring ríkja fyrir norðan – „Þetta er ekki að slá ryki í augun á neinum“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hrafnkell ómyrkur í máli og trúði vart því sem hann sá – „Það var bara fáránlegt að horfa upp á þetta“

Hrafnkell ómyrkur í máli og trúði vart því sem hann sá – „Það var bara fáránlegt að horfa upp á þetta“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

15 þúsund manns hvetja hann í að vera áfram

15 þúsund manns hvetja hann í að vera áfram
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

England: Everton áfram í efstu deild

England: Everton áfram í efstu deild