fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Segja að Kolbeinn sé launahæsti leikmaðurinn: Þetta er hann sagður þéna á mánuði

Ritstjórn DV
Mánudaginn 28. janúar 2019 11:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt frétt Ouest France í Frakklandi eru ekki miklar líkur á því að Kolbeinn Sigþórsson yfirgefi Nantes á næstu dögum.

Félagaskptaglugginn lokar á fimmtudag og hefur Kolbeini ekki tekist að finna sér nýtt lið. Hann fær ekki að spila hjá Nantes og æfir aðeins með varaliði féalgsins.

Kolbeinn var um helgina orðaður við Vancouver Whitecaps í MLS deildinni en þangað fer hann ekki, Nantes heldur því að Kolbeinn verði áfram.

Félagið hefur viljað losna við Kolbein en Ouest segir að framherjinn sé launahæsti leikmaður félagsins. Ouest segir að Kolbeinn þéni 120 þúsund evrur á mánuði sem gerir um 16,5 milljónir íslenskra króna.

Kolbeinn hefur reynt að gera starfslokasamning við félagið en eigandi, Waldemar Kita hefur ekki viljað gera það.

Kolbeinn gekk í raðir Nantes árið 2015 en meiðsl hafa sett stórt strik í reikning hans. Hann hefur hins vegar verið heill heilsu stærstan hluta ársins en þrátt fyrir það er hann ekki í plönum félagsins.

Kolbeinn kom aftur inn í íslenska landsliðið síðasta haust en ef staða hans hjá Nantes breytist ekkert, þá er ólíklegt að hann haldi sæti sínu í hópnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði