Knattspyrnustuðningsmaður í Tyrklandi hefur orðið frægur á einni nóttu. Hann var að reykja sígraettu í stúkunni á leik Bursaspor og Fenerbache.
Verið var að hita upp fyrir leikinn þegar sást til hans reykja, allir héldu að þarna væri ungur drengur að reykja.
Miðlar í Tyrklandi segja hins vegar frá því dag að þetta sé ekki krakki, heldur sé um að ræða 36 ára karlmann. Ekki eru allir sem kaupa það.
Maðurinn sem um ræðir hefur ekki viljað ræða við fjölmiðla en myndband af honum að reykja er hér að neðan.
Fenerbahçe ve Bursaspor'un çocuklar için düzenlediği maçtaki görüntüye bak ahdsahjadshjajhajh pic.twitter.com/2WPsqTpLrU
— Nikola (@objektifdegilim) September 8, 2019