Danny Mills, fyrrum landsliðsmaður Englands, telur að Adam Lallana, leikmaður Liverpool, sé fullkominn fyrir meistara Manchester City.
Lallana er 31 árs gamall í dag en hann gæti verið á förum frá Liverpool í sumarglugganum.
Mills telur að City gæti notað Lallana sem fær fá tækifæri á Anfield þessa dagana.
,,Þú gleymir honum nánast en hann er mjög hæfileikaríkur knattspyrnumaður,“ sagði Mills.
,,Ég myndi segja að hann henti leikstíl Manchester City meira, hann væri fullkominn fyrir þá. Hann tekur stutt og mjög sniðug hlaup.“
,,Því eldri sem þúr verður þá áttarðu þig á því að þú ert ekki ósnertanlegur og ferillinn endist ekki að eilífu.“
,,Liverpool mun sjálfsagt vilja halda honum en hann gæti reynt að endurlífga ferilinn.“