fbpx
Mánudagur 01.desember 2025
433Sport

Gylfi skoraði og lagði upp er Everton slátraði Manchester United

Victor Pálsson
Sunnudaginn 21. apríl 2019 14:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Everton 4-0 Manchester United
1-0 Richarlison(13′)
2-0 Gylfi Þór Sigurðsson(28′)
3-0 Lucas Digne(56′)
4-0 Theo Walcott(64′)

Fyrsta leik dagsins á Englandi er nú lokið en lið Manchester United heimsótti þá lið Everton í Liverpool.

Um var að ræða mikilvægan leik fyrir bæði lið en United stefnir að því að komast í Meistaradeildina og Everton vill hafna í sjöunda sæti.

Fyrsta mark leiksins skoraði Brassinn Richarlison fyrir heimamenn þegar 13 mínútur voru komnar á klukkuna.

Ekki löngu seinna var staðan orðin 2-0 er Gylfi Þór Sigurðsson bætti við marki og staðan 2-0 í hálfleik.

Lucas Digne og Theo Walcott bættu svo báðir við mörkum í seinni hálfleik fyrir Everton sem vann að lokum frábæran 4-0 sigur.

Gylfi lék allan leikinn fyrir Everton og lagði upp fjórða mark liðsins á Walcott ásamt því að skora mark.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Vill að Greenwood fái annað tækifæri þrátt fyrir gjörðir sínar

Vill að Greenwood fái annað tækifæri þrátt fyrir gjörðir sínar
433Sport
Í gær

Dóri telur Liverpool hafa gert mistök með því að sækja stjörnuna – „Hvernig mun hann haga sér hér?“

Dóri telur Liverpool hafa gert mistök með því að sækja stjörnuna – „Hvernig mun hann haga sér hér?“
433Sport
Í gær

Eiður Smári laskaður eftir magnaðan feril – „Mér er illt alls staðar, ég get ekki farið út að hlaupa“

Eiður Smári laskaður eftir magnaðan feril – „Mér er illt alls staðar, ég get ekki farið út að hlaupa“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir farir sínar ekki sléttar eftir fund með yfirmanninum – Kona hans og börn grétu eftir tíðindin

Segir farir sínar ekki sléttar eftir fund með yfirmanninum – Kona hans og börn grétu eftir tíðindin
433Sport
Fyrir 2 dögum

City ætlar að slást við Arsenal og Real Madrid um næstu stjörnu Spánar

City ætlar að slást við Arsenal og Real Madrid um næstu stjörnu Spánar