Manchester United á Englandi hefur verið að fylgjast með bakverðinum Thomas Meunier allt þetta tímabil.
Frá þessu greina franskir miðlar en Meunier spilar í bakverði hjá meisturum Paris Saint-Germain.
United vill styrkja öftustu línu fyrir næstu leiktíð en Meunier er bestur í hægri bakverði þar sem Ashley Young hefur spilað.
Hinn ungi Diogo Dalot er einnig til staðar en óvíst er hvort hann sé tilbúinn fyrir byrjunarliðssæti.
Meunier er fastamaður hjá PSG og belgíska landsliðinu en njósnarar á vegum United hafa skoðað hann margoft á leiktíðinni.
Meunier er samningsbundinn PSG til ársins 2020 og gæti því verið fáanlegur í sumar.