Það er enginn varnarmaður Liverpool eða Chelsea sem er betri en það sem Manchester United hefur upp á að bjóða í öftustu línu.
Þetta segir Nemanja Vidic, fyrrum leikmaður United en hann var klettur í vörn liðsins í þónokkur ár.
Vidic myndi ekki taka við leikmanni á borð við Virgil van Dijk frekar en Victor Lindelof, Eric Bailly, Chris Smalling eða Phil Jones.
,,Lindelof lenti í erfiðleikum í byrjun en vel gert hjá honum að snúa blaðinu við,“ sagði Vidic.
,,Það er ekki auðvelt, sérstaklega hjá félagi eins og Manchester United sem er stórt félag og þú færð gagnrýni í fjölmiðlum.“
,,Það sýnir karakter að koma til baka, það er mikilvægt ef þú vilt spila fyrir Manchester United.“
,,Phil Jones hefur spilað vel undanfarið, Chris Smalling er góður varnarmaður og Eric Bailly líka. Við erum með fjóra góða varnarmenn og með réttri frammistöðu þá geta þeir spilað sinn besta leik.“
,,Í heildina litið, þrátt fyrir að þeir hafi ekki átt frábæra leiki þá myndi ég ekki taka einn varnarmann Chelsea eða Liverpool í staðinn. Þeir eru ekki með betri varnarmenn.“