Manchester United heimsótti Sevilla á Spáni í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær en það vakti athygli að Paul Pogba byrjaði á meðal varamanna. Hann var þó ekki lengi á bekknum því eftir um 15 mínútna leik kom han inn fyrir meiddan Ander Herrera.
United spilaði þéttan varnarleik en í nokkur skipti náði liðið að búa sér til góð færi. Þá var mættur á svæðið David De Gea sem varði meistaralega í nokkur skipti.
United skapaði sér ekki mörg færi í leiknum en Romelu Lukaku fékk eitt afar gott í fyrri hálfleik en skaut yfir. Síðari leikurinn fer fram á Old Trafford um miðjan mars.
,,Ef sóknarmaðurinn hefði skallað niður, þá hefði De Gea líklega sparkað boltanum í burtu,“ sagði Frank Lampard sérfræðingur BT Sports um frammistöðu De Gea í gær.
Flestir eru á því að De Gea sé fremsti markvörður í heimi og Lampard tekur undir það.
,,Hann er markvörður sem býr til hræðslu hjá sóknarmönnum, hann er svo góður að menn fara að hugsa hvort þeir í raun og veru geti skorað hjá honum.“