Fyrri leikjum í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar er nú lokið en tveir síðustu leikirnir fóru fram í kvöld.
Manchester United heimsótti Sevilla á Spáni en það vakti athygli að Paul Pogba byrjaði á meðal varamanna. Hann var þó ekki lengi á bekknum því eftir um 15 mínútna leik kom han inn fyrir meiddan Ander Herrera.
United spilaði þéttan varnarleik en í nokkur skipti náði liðið að búa sér til góð færi. Þá var mættur á svæðið David De Gea sem varði meistaralega í nokkur skipti. United skapaði sér ekki mörg færi í leiknum en Romelu Lukaku fékk eitt afar gott í fyrri hálfleik en skaut yfir. Síðari leikurinn fer fram á Old Trafford um miðjan mars.
Jose Mourinho stjóri Manchester United sagði að leik loknum að hann teldi að Herrera yrði lengi frá.
Ljóst er að það yrði áfall fyrir United sem á marga mikilvæga leiki fyrir höndum.