fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
433

Klopp búinn að bæta met Rodgers og Benitez

Victor Pálsson
Mánudaginn 17. desember 2018 19:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur náð ansi fínum árangri með félagið eftir að hafa tekið við árið 2015.

Klopp er vinsæll á Anfield þessa dagana en Liverpool situr á toppnum í ensku úrvalsdeildinni eftir 17 umferðir.

Klopp og félagar unnu Manchester United í úrvalsdeildinni í gær en liðið hafði betur með þremur mörkum gegn einu.

Liverpool er nú taplaust í ensku úrvalsdeildinni í 18 leikjum í röð og bætti Klopp met þeirra Rafael Benitez og Brendan Rodgers. Liverpool hefur aldrei verið taplaust eins lengi og í dag.

Benitez náði að spila 17 leiki í röð án þess að tapa en hann var stjóri Liverpool frá 2004 til 2010.

Rodgers var þjálfari Liverpool frá 2012 til 2015 og tókst að spila 16 leiki í efstu deild án þess að tapa.

Klopp hefur því bætt met þeirra beggja en Liverpool er eina taplausa liðið í úrvalsdeildinni á leiktíðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þrír Íslendingar sköruðu fram úr í Danmörku um helgina

Þrír Íslendingar sköruðu fram úr í Danmörku um helgina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Nýtt sjónarhorn úr myndavél KR sýnir framkomu Smit betur – Hrindir einu barni nokkuð harkalega frá sér

Nýtt sjónarhorn úr myndavél KR sýnir framkomu Smit betur – Hrindir einu barni nokkuð harkalega frá sér
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir að þarna hafi Ten Hag tapað klefanum á Old Trafford

Segir að þarna hafi Ten Hag tapað klefanum á Old Trafford
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Fer Van Dijk til Þýskalands í sumar?

Fer Van Dijk til Þýskalands í sumar?
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Einlægur Brynjar ræðir tilfinningnaþrungna tíma í Grindavík – „Við hugsum eiginlega bara um daginn í dag“

Einlægur Brynjar ræðir tilfinningnaþrungna tíma í Grindavík – „Við hugsum eiginlega bara um daginn í dag“
433Sport
Í gær

Samúel reiður og birtir myndband eftir atvik um helgina þar sem Eiður fótbrotnaði – „Ekkert sem fer meira í taugarnar á mér en rottur“

Samúel reiður og birtir myndband eftir atvik um helgina þar sem Eiður fótbrotnaði – „Ekkert sem fer meira í taugarnar á mér en rottur“
433Sport
Í gær

Birti mynd af svimandi háum reikningi fyrir „hefðbundnum fjölskyldukvöldverði“

Birti mynd af svimandi háum reikningi fyrir „hefðbundnum fjölskyldukvöldverði“
433Sport
Í gær

Launakostnaður opinberaður og niðurstaðan er áhugaverð – Ótrúlegur munur milli félaga

Launakostnaður opinberaður og niðurstaðan er áhugaverð – Ótrúlegur munur milli félaga