Það er draumur fyrir vængmanninn Christian Bassogog að spila fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
Bassogog spilar með liði Henan Jinye í Kína en hann kom þangað frá Aalborg í Danmörku árið 2017.
Hann var valinn besti leikmaður Afríkukeppninnar á síðasta ári og gæti nú verið á leið aftur til Evrópu.
,,Já það er draumurinn að fara aftur til Evrópu. Ég vil spila í bestu deild heims, ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Bassogog sem er 23 ára gamall.
,,Uppáhalds félagið mitt hefur verið Arsenal síðan ég var lítill. Ég vil vera með boltann og það félag hentar mér.“
,,Þegar ég var yngri þá var Thierry Henry fyrirmyndin mín. Það er leikmaður sem ég var mjög hrifinn af.“