Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal, er óvænt á óskalista þýska liðsins Bayern Munchen en hann verður samningslaus næsta sumar. (Express)
Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, er tilbúinn að hleypa þeim Danny Drinkwater og Victor Moses frá félaginu í janúar. (Standard)
Bæði Chelsea og Manchester City eru á eftir Bali Mumba, 17 ára gömlum leikmanni Sunderland. (Sun)
Tottenham vill fá miðjumanninn Wilmar Barrios sem spilar með Boca Juniors í janúar. (Star)
West Ham íhugar að reyna að fá framherjann Kostas Mitroglou á láni frá Marseille í janúar. (Mail)
Everton vill fá bakvörðinn Aaron Wan-Bissaka sem hefur vakið athygli með Crystal Palace. (Sun)