fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Siggi Dúlla uppljóstrar stóru leyndarmáli um Heimi Hallgrímsson – Var krafa að þetta væri á herbergi hans

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 31. október 2018 11:13

Mynd: Síminn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu verður gestur Loga Bergmanns á morgun. Með Loga fer í sýningu í Sjónvarpi Símanns Premium á morgun, fimmtudag.

Heimir lét af störfum sem landsliðsþjálfari Íslands í sumar og leitar að nýju starfi í þjálfun.

Heimir er sterklega orðaður við störf í Bandaríkjunum. Logi Bergmann ræðir við Sigurð Svein Þórðarson, eða Sigga Dúllu um hvaða leyndarmál Heimir hefur að geyma.

Siggi er búningastjóri landsliðsins og hefur hann átt í mjög nánu sambandi við Heimi.

,,Heimir fær allar sínar bestu hugmyndir í baði, það var krafa að það væri bað á herberginu sem hann var í til að fá hugmyndir. Þegar hann var í vandræðum með að að velja liðið, þá fór hann í bað, hann mun aldrei viðurkenna þetta,“ segir Siggi Dúlla í þættinum.

,,Hann fer í þjálfun, hann vill vera í sólinni. Hann hefur gaman af því að tana, ætli það séu ekki Bandaríkin. Þar sem sól, hann fer ekki þar sem vetur.“

Myndbrot um þetta má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla
433Sport
Í gær

Slot staðfestir viðræður við Liverpool

Slot staðfestir viðræður við Liverpool
433Sport
Í gær

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“