Oleksandr Zinchenko vinstri bakvörður Manchester City hélt að hann myndi fá að vera í hóp gegn sínu gamla félagi, Shaktar Donetsk í gær.
City vann góðan sigur á útivelli í Meistaradeildinni en Zinchenko ferðaðist með City í leikinn.
Hann ákvað því að kaupa 27 miða á leikinn fyrir fjölskyldu og vini sína.
Zinchenko hélt að hann yrði í hóp enda var hann sendur að ræða við fréttamenn, degi fyrir leik.
Þegar Pep Guardiola valdi svo 18 manna hóp sinn þá komst Zinchenko ekki í hann og varð því að vera í stúkunni.
Zinchenko fær ekki mörg tækifæri hjá City en hann er 21 árs gamall og hefur verið svekktur eftir leikinn í gær.