Wayne Rooney framherji DC United hefur fengið leyfi til að byggja upp stóran og góðan vegg í kringum nýtt heimili sitt.
Rooney er að byggja sér nýtt heimili í úthverfi Manchester en það kostar hann í kringum 20 milljónir punda.
Framherjinn hefur verið að reyna að fá leyfi til að byggja veglegan vegg í kringum heimili sitt.
Ástæðan er sú að brotist var inn á gamla heimili hans og er Coleen, eiginkona hans hrædd við að það gerist aftur.
Fyrst um sinn var Rooney bannað að byggja vegginn sem hann vildi en hann hefur nú fengið leyfi til þess.
Rooney lækkaði vegginn frá upphaflegri áætlun og fékk það í gegn en heimilið verður eitt af þeim glæsilegri á Englandi.