Xherdan Shaqiri, leikmaður Liverpool, viðurkennir það að hann hafi búist við því að fá takmarkaðan spilatíma í byrjun tímabils.
Shaqiri var keyptur á 13 milljónir punda í sumar en hann hefur komið við sögu í alls sjö leikjum í öllum keppnum.
,,Þú þarft ekki að gera neitt til að halda mér ánægðum. Þetta hefur gengið vel fyrir sig til þessa,“ sagði Shaqiri.
,,Auðvitað vilja allir atvinnumenn fá að spila og það er eins með mig en það eru margir leikir eftir.“
,,Þú verður bara að sætta þig við það sem hefur verið í gangi hjá Liverpool undanfarið. Það eru margir sem hafa gert vel.“
,,Það er ástæðan fyrir því að allt hefur ekki breyst á einnu nóttu. Þetta er nákvæmlega það sem ég bjóst við.“
,,Ég ákvað að fara til Liverpool vitandiu það að það yrði erfiðara fyrir mig hérna frekar en hjá öðrum liðum sem reyndu að hjálpa mér.“