Sterkasta deild í heimi, sjálf Meistaradeild Evrópu fór af stað með látum í vikunni. Barcelona lék PSV grátt.
Tottenham tapaði fyrir Inter og Lyon vann mjög óvæntan sigur á Manchester City á útivelli.
Juventus vann Valencia á útivelli þrátt fyrir að Cristiano Ronaldo hafi fengið rautt spjald, snemma leiks.
Manchester United vann sigur á Young Boys og Liverpool vann öflugan sigur á PSG.
WhoScored hefur valið lið umferðarinnar í Meistaradeildinni. Það má sjá hér að neðan.