Íslenska karlalandsliðið tapaði gegn Nígeríu á HM í Rússlandi í dag en lokatölur urðu 2-0 fyrir nígeríska liðinu.
Ísland er í erfiðri stöðu fyrir lokaumferðina en við mætum þá Króatíu sem hefur unnið báða sína leiki í riðlakeppninni.
Spilamennska íslenska liðsins þótti ekki góð gegn Nígeríu í dag og þá sérstaklega í síðari hálfleik er við fengum á okkur bæði mörkin.
Halldór Björnsson, markmannsþjálfari, setti inn athyglisverða færslu á Twitter í dag eftir tap okkar manna.
Halldór starfaði með Sigurði Ragnari Eyjólfssyni hjá kínverska kvennalandsliðinu áður en Siggi Raggi var látinn fara.
Mikið hefur verið rætt um lífið utan vallar hjá íslensku strákunum á HM og má nefna Rúrik Gíslason sem er kominn með yfir 800 þúsund fylgjendur á Instagram.
Halldór er með ráð fyrir íslensku strákana sem má sjá hér fyrir neðan.
ok nú er bara taka niður sólgleraugun, hætta hugsa um þetta instagram bull og henda þessum Mið-Ísland gaurum út af hótelinu? upp með hausinn,út með kasann, upp á hótel að leikgreina og svo beint á æfingasvæðið og upp úr þessum riðli ??
ÁFRAM ÍSLAND ❤️— Halldór Björnsson (@HalldorBj) 22 June 2018