Það fór fram bragðdaufur leikur í Kópavogi í kvöld þar sem Víkingur Reykjavík heimsótti Breiðablik.
Það var ekki boðið upp á veislu í leik kvöldsins sem lauk með markalausu jafntefli.
Hér má sjá það góða og slæma úr leiknum.
Plúsar:
Varnarleikur Víkinga var frábær, lokuðu öllum leiðum og gáfu mjög fá færi á sér.
Gunnleifur Gunnleifsson var mjög öruggur í markinu, Víkingar áttu nokkur fín færi en hann gerði vel í þeim öllu.
Ívar Orri Kristjánsson var flottur á flautunni, hélt góðri línu og steig varla feilspor.
Mínus:
Sóknarleikur Blika var hægur, hugmyndasnauður og heilt yfir bara mjög dapur. Virðast vera orðnir þreyttir eftir þessa löngu leikjatörn í MAÍ.
Hrjove Tokic var gjörsamlega skelfilegur þær 60 mínútur sem hann spilaði. Hélt bolta illa, spilaði honum illa frá sér og hlaupin hans inn í teig voru vægast sagt áhugalaus.