James Pallotta, forseti Roma segir að félagið muni ekki selja Alisson, markmann liðsins í sumar.
Alisson hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid og Liverpool að undanförnu en hann hefur verið magnaður fyrir Roma á þessari leiktíð.
Félagið keypti hann sumarið 2016 fyrir einungis 7 milljónir punda af Internacional en hann var sterklega orðaður við Liverpool í janúarglugganum.
„Við ætlum okkur ekki að selja hann og við munum ekki selja hann,“ sagði Pallotta.
„Þegar að við keyptum hann þá vissum við að við værum að kaupa frábæran markmann.“
„Hann er ennþá frábær markmaður og þess vegna ætlum við okkur ekki að selja hann,“ sagði forsetinn að lokum.