Arsene Wenger stjóri Arsenal segir að það hafi verið erfitt fyrir sig að heyra orð Roy Keane um Jack Wilshere í gær.
Arsenal tapaði 1-2 fyrir Östersund en fór þó örugglega áfram í 16 liða úrslit Evrópudeildarinnar.
,,Hvar byrja ég, Arsenal er frábært dæmi um það hvernig á ekki að byrja fótboltaleik. Þeir byrja illa og eru með slæmt viðhorf,“ sagði Keane.
,,Wenger fór vel yfir þetta, ekki nein orka, ekki neinn vilji. Þú vonast eftir því að eldri leikmenn taki ábyrgð. Það getur ekki farið vel þegar Wilshere er fyrirliði, ofmetnasti knattspyrnumaður í heimi.“
Það var erfitt fyrir Wenger að heyra þessi orð.
,,Það er erfitt að heyra þetta, ég kann vel að meta Wilshere. Það er hægt að hafa skoðun, Jack lék leikinn en spilaði ekki vel,“ sagði Wenger.
,,Þetta var klárlega ekki hans besta frammistaða, Roy Keane veit að það getur gerst fyrir alla.“