Leikið var til úrslita í Íslandsmóti innanhús í dag í meistaraflokki karla og kvenna, en undanúrslitin fóru fram í gær.
Í kvennaflokki mættust Breiðablik/Augnablik og Álftanes og það var Álftanes sem vann öruggan sigur.
Álftanes vann 0-7 sigur og eru Íslandsmeistarar í futsal þetta árið.
Í karlafloki áttust við Vængir Júpíters og Augnablik en það voru Vængir sem unnu úrslitaleikinn.
Alexander Bjarki Rúnarsson og Kolbeinn Kristinsson skoruðu báðir tvö mörk í 6-3 sigri.