fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Sport

Icardi fær sér flennistórt húðflúr sem þekur allan búk hans

Framherji Inter Milan er stórtækur í líkamsskreytingum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 4. maí 2017 11:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mauro Icardi, sóknarmaður Inter Milan, hefur á Instagram-síðu sinni frumsýnt nýtt flennistórt húðflúr sem þekur allan búk hans.

Icardi og húðflúrarinn sem setti saman þetta mikla listaverk.
Sáttur Icardi og húðflúrarinn sem setti saman þetta mikla listaverk.

Flúrið er af ljóni með afkvæmum sínum og þekur alla bringu hans og maga auk þess sem þar er að finna nöfn dætra hans, Francescu og Isabellu. Fyrir var argentínski knattspyrnumaðurinn með handleggina rækilega flúraða og því lítið orðið eftir af húð sem ekki er þakin bleki.

Icardi virðist óhræddur við að láta flúra sig þó að knattspyrnuleiktíðin á Ítalíu standi sem hæst, en vinna við þetta tiltekna verk hófst fyrir nærri hálfu ári síðan.

Tattúvinnan hefur þó ekki haft áhrif á Icardi innan vallar þar sem hann er sem stendur næstmarkahæstur í ítölsku deildinni með 24 mörk, einu færra en Edin Dzeko og Andrea Belotti. Lið hans, Inter Milan, hefur þó valdið vonbrigðum í deildinni og vermir 7. sæti deildarinnar. Framherjinn hefur verið orðaður við ýmis félög undanfarið, meðal annars í ensku úrvalsdeildinni.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem Icardi birtir á Instagram.


??????

A post shared by Mauro Icardi (@mauroicardi) on

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Í gær

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði