fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Sport

Svona heldur félagið sér í röð þeirra bestu

Southampton gerir sárafá mistök á leikmannamarkaðnum – Skipulag er lykilatriði

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 1. febrúar 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Southampton komst í liðinni viku í úrslitaleik enska deildabikarsins eftir sigur á Liverpool í undanúrslitum, 2-0 samanlagt. Góður árangur Southampton á undanförnum árum hefur komið mörgum á óvart enda hefur félagið ávallt þurft að horfa á eftir sínum bestu leikmönnum til stærri klúbba. Southampton vinnur hins vegar eftir ákveðinni aðferð sem skilar liðinu alltaf ungum og efnilegum leikmönnum sem eru tilbúnir að feta í fótspor annarra leikmanna. DV rýndi í félagið og skoðaði hvernig það vinnur.

27 milljarðar á þremur árum

Southampton situr sem stendur í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 27 stig – liðið er nokkuð langt frá toppliðunum en einnig fjarri fallsvæðinu. Félagið er nú hársbreidd frá því að vinna sinn fyrsta titil frá árinu 1976, en lærisveinar José Mourinho í Manchester United standa í veginum. Liðin mætast í úrslitaleik deildabikarsins í lok febrúar næstkomandi.

Frá sumrinu 2014 hefur Southampton selt leikmenn fyrir 186 milljónir punda, rúma 27 milljarða króna á núverandi gengi. Sumar eftir sumar hefur liðið selt sína bestu leikmenn; nægir í því samhengi að nefna Adam Lallana, Morgan Schneiderlin, Graziano Pelle, Victor Vanyama, Dejan Lovren, Luke Shaw, Sadio Mane, Rickie Lambert og Nathaniel Clyne. Þar áður seldi félagið leikmenn eins og Alex Oxlade-Chamberlain, Theo Walcott og Gareth Bale. Þetta eru allt býsna öflugir leikmenn en þrátt fyrir það hefur félagið náð að halda dampi, ólíkt mörgum öðrum félögum.

Skrefi framar

Til að ná árangri og klófesta unga og efnilega leikmenn þurfa félög að hafa öflugt lið njósnara til að koma auga á þá. Um miðjan áttunda áratug liðinnar aldar hafði framkvæmdastjóri félagsins, Lawrie McMenemy, milligöngu um stofnun nets útsendara sem unnu meðal annars í Wales og raunar um allt Bretland. Félagið náði einmitt að klófesta Gareth Bale með aðstoð útsendara sinna í Wales þegar Bale, sem af mörgum er talinn einn besti knattspyrnumaður heims í dag, var ellefu ára gamall. 40 árum síðar hefur Southampton fært út kvíarnar og er nú með útsendara starfandi víða í Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Þetta fyrirkomulag er ekkert einsdæmi hjá félögum í ensku úrvalsdeildinni, eða öðrum stórum deildum Evrópu, en Southampton virðist engu að síður vera skrefi framar þegar kemur að því að koma auga á efnilega leikmenn.

Les Reed er potturinn og pannan

Frá árinu 2010 hefur knattspyrnustjórinn fyrrverandi, Les Reed, verið yfirmaður þróunarmála hjá Southampton. Undir stjórn hans hefur félagið náð góðum árangri í að koma auga á efnilega leikmenn.
„Þegar maður reynir að grafa upp unga leikmenn sem hafa burði til að verða frábærir leikmenn þarf maður miklar upplýsingar,“ sagði Reed við BBC fyrir skemmstu og bætti við að skipulag væri lykilþáttur í velgengni félagsins á leikmannamarkaðnum.

„Þegar maður reynir að grafa upp unga leikmenn sem hafa burði til að verða frábærir leikmenn þarf maður miklar upplýsingar.“

En félagið hefur ekki bara klófest unga og efnilega leikmenn, heldur einnig leikmenn sem fáir vissu að væru til og einhverjir voru jafnvel búnir að afskrifa. Meðal þessara leikmanna er leikmaður eins og Sadio Mané, sem var að spila í Austurríki árið 2014 þegar Southampton keypti hann. Mané, sem í dag spilar með Liverpool, hefur verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Graziano Pelle voru margir búnir að afskrifa; hann skoraði lítið framan af ferli sínum en átti svo tvö góð tímabil með Feyenoord í Hollandi áður en Southampton keypti hann. Hann er nú fastamaður í ítalska landsliðinu en var seldur frá Southampton til Kína í fyrrasumar. Dæmin eru fleiri; Morgan Schneiderlin var 19 ára og alls óþekktur þegar hann gekk til liðs við Southampton og José Fonte var tiltölulega óþekktur leikmaður þegar Southampton keypti hann frá Crystal Palace árið 2010. Báðir þessir leikmenn eru í dag landsliðsmenn með Frökkum og Portúgölum.

Sex greinendur í fullu starfi

Í umfjöllun BBC á dögunum kom fram að Southampton búi yfir gagnagrunni með upplýsingum yfir nær flesta leikmenn í heimsfótboltanum. Sex starfsmenn, í fullu starfi, vinna við greiningar á þessum upplýsingum þar sem má finna upplýsingar um meiðsli, kosti og galla viðkomandi leikmanns og þróun hans. Nýjum leikmönnum er bætt við gagnagrunninn þegar nýjar upplýsingar berast. Til að nefna dæmi um hvernig gagnagrunnurinn virkar má geta þess að Oriol Romeu var settur í gagnagrunninn þegar hann var 19 ára leikmaður Barcelona. Félagið hélt áfram að safna upplýsingum um hann og þegar Victor Wanyama hafnaði nýjum samningi við Southmapton var félagið komið með nógu gagnlegar upplýsingar til að geta mælt með honum við þáverandi stjóra félagsins, Ronald Koeman. Romeu var keyptur fyrir 5 milljónir punda árið 2015 og ári síðar var Wanyama seldur fyrir 11 milljónir punda. Romeu hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu á tímabilinu og virðist félagið ekki sakna Wanyama tilfinnanlega.

Það eru ekki bara upplýsingar um leikmenn sem félagið heldur utan um. Stjórarnir sem taka við liðinu eru ekki síður mikilvægir en leikmennirnir. Mauricio Pochettino var ekki mjög sjóaður í stjórabransanum þegar hann var ráðinn til Southampton árið 2013. Í dag er hann talinn í hópi snjöllustu stjóra fótboltans eftir góðan árangur með Southampton og nú Tottenham. Claude Puel tók við stjórnartaumunum hjá Southampton í fyrrasumar þegar Ronald Koeman fór til Everton. Puel, sem var tiltölulega óþekktur á Englandi, hafði stýrt Lille í Frakklandi um nokkurra ára skeið. Áður en hann var ráðinn til Southampton sumarið 2016 var félagið með 40 blaðsíðna skýrslu um hann í gagnagrunni sínum. Puel hefur fengið mikið lof fyrir spilamennsku Southampton á tímabilinu þar sem skipulag og góður fótbolti – oftast nær – ræður ríkjum.


Næstir til að fara?

Oriol Romeu

Staða: Miðjumaður
Aldur: 25 ára

Romeu er alinn upp í herbúðum Barcelona og gekk til liðs við Chelsea árið 2011. Eftir að hafa verið lánaður til Valencia og Stuttgart samdi Romeu við Southampton árið 2015. Hann hefur verið lykilmaður á miðju Southampton í vetur.


Jack Stephens

Staða: Varnarmaður
Aldur: 23 ára

Stephens þótti leika frábærlega í vörn Southampton gegn Liverpool í síðustu viku. Hefur fengið fá tækifæri á undanförnum árum en nú þegar José Fonte er farinn mun tækifærunum fjölga. Efnilegur leikmaður sem gæti náð langt.


James Ward-Prowse

Staða: Miðjumaður
Aldur: 22 ára

Ward-Prowse er einn reynslumesti leikmaður Southampton þrátt fyrir ungan aldur. Frábær spyrnumaður sem hefur spilað vel að undanförnu. Honum var spáð bjartri framtíð fyrir nokkrum árum og virðist loksins standa undir þeim væntingum sem gerðar voru.


Mynd: EPA

Virgil van Dijk

Staða: Varnarmaður
Aldur: 25 ára

Hefur verið einn besti varnarmaður ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Mörg félög eru á eftir þessum öfluga Hollendingi.


Pierre-Emile Højbjerg

Staða: Miðjumaður
Aldur: 21 árs

Þessi öflugi danski miðjumaður kom frá Bayern München í fyrrasumar og er talinn einn efnilegasti leikmaður Dana. Hann hefur hægt og bítandi verið að sýna sitt rétta andlit.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Enn einn leikmaðurinn bætist á meiðslalista Chelsea – Frá út tímabilið

Enn einn leikmaðurinn bætist á meiðslalista Chelsea – Frá út tímabilið
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni