Íslendingar mæta Spánverjum í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta í Frakklandi í dag. Leikurinn hefst klukkan 19:45 og er sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpinu.
Stórt skarð var höggvið í liðið í gær þegar ljóst varð að Aron Pálmarsson getur ekkert spilað með liðinu á mótinu. Fyrir vikið opnast tækifæri fyrir aðra menn og hefur Ólafur Guðmundsson verið nefndur til sögunnar í því samhengi. Hann mun fá mun stærra hlutverk en annars hefði verið. Ólafur hefur áður farið á stórmót en ekki verið í aðalhlutverki.
Fjórir leikmenn eru að fara á sitt fyrsta stórmót. Línumaðurinn og varnartröllið Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad, Bjarki Már Elísson, Fushce Berlin, Ómar Ingi Magnússon Aarhus og Janus Daði Smárason Haukum. Eftir ágæta spretti á æfingamóti í Danmörku í síðustu viku eru miklar vonir bundnar við þessa leikmenn.
Spáverjar eru með eitt besta handboltalið heims og ljóst að við ramman reip verður að draga.