Mun líklega afplána dóminn í samfélagsþjónustu
Hægri bakvörður franska stórliðsins PSG, Serge Aurier, hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að ráðast á lögregluþjón. Fílbeinsstrendingurinn var einnig sektaður um sem nemur tæpum 80 þúsund krónum.
Í frétt breska blaðsins Mirror kemur fram að ólíklegt sé að Aurier þurfi að afplána í fangelsi. Flest bendi til þess að hann muni afplána dóminn í samfélagsþjónustu. Dómurinn mun því ekki hafa valda því að Aurier missi af leikjum PSG, en liðið mætir Ludogorets í Meistaradeildinni í vikunni.
Aurier var keyptur til PSG síðasta sumar en hann á 31 landsleik að baki fyrir Fílabeinsströndina.